Arsenal og Brighton hafa náð saman um kaupverðið á miðverðinum Ben White, sem er á mála hjá síðarnefnda liðinu. The Athletic greinir frá.
White hefur verið orðaður við Arsenal í allt sumar. Nú virðast skiptin ætla að gang í gegn. Kaupverðið er um 50 milljónir punda. Leikmaðurinn á aðeins eftir að gangast undir læknisskoðun.
Hinn 23 ára gamli White átti gott tímabil með Brighton í fyrra. Hann var í kjölfarið valinn í enska landsliðið fyrir Evrópumótið í sumar.