Keflavík tók á móti Stjörnunni í Pepsi Max-deild karla í gær. Nýliðarnir unnu nokkuð óvæntan 2-0 sigur. Þetta var fyrsti leikur Stjörnunnar eftir uppsögn Rúnars Páls Sigmundssonar í vikunni. Þorvaldur Örlygsson stýrir liðinu nú.
Uppsögn Rúnars kom eins og þruma úr heiðskíru lofti í síðustu viku en eftir átta ár vildi Rúnar hætta, tímasetningin kom mest á óvart en Rúnar sagði upp eftir fyrstu umferð í deildinni.
„Hann hefur staðið sem gríðarlega vel og þetta kom öllum á óvart, sérstaklega mér og þetta var ekki það sem ég bjóst við og vildi en staðan er þessi og þegar hún kemur er verður að aðlaga sig að því og halda áfram,“ sagði Þorvaldur við Morgunblaðið um óvænta uppsögn Rúnars.
Sölvi Snær Guðbjargarson hefur verið nefndur sem ein af ástæðum þess að Rúnar sagði upp. Í hinum ýmsu fjölmiðlum hefur það komið fram að stjórn Stjörnunnar hafi verið ósátt við það að Rúnar hafi spilað Sölva í fyrsta leik gegn Leikni. Sölvi á aðeins nokkra mánuði eftir af samningi sínum og hefur Breiðablik rætt við hann,.
„Sölvi spilaði í dag og spilaði í síðasta leik. Það hefur verið talað um að samningur hans renni út í haust en við skoðum það eins og með alla aðra leikmenn, við höldum áfram með það. Ég hef ekki fylgst með allri umræðu um hans mál og er ekki að velta. Það er hinsvegar með svona ungan dreng, ég hef meiri áhyggjur ef hann velti sér upp úr þessu en hann hefur staðið sig vel,“ sagði Þorvaldur við Morgunblaðið en viðtalið má lesa í heild hérna.