fbpx
Föstudagur 13.mars 2026
433Sport

Hver verður leikmaður ársins í enska?

Helga Jónsdóttir
Sunnudaginn 18. apríl 2021 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú þegar enska úrvalsdeildin fer að klárast þá líður að því að besti leikmaður deildarinnar verði valinn. Kevin DeBruyne var valinn leikmaður ársins í fyrra. Daily Mail birti lista þar sem farið var yfir þá sem eru líklegastir í ár. Þrír leikmenn Manchester City eru á listanum og þá kemst einn leikmaður Englandsmeistara Liverpool á listann.

Listann má sjá hér að neðan:

Ilkay Gundogan (Manchester City)
Gundogan hefur verið algjörlega frábær í geggjuðu liði Manchester City. Hann er kominn með 12 mörk í deildinni sem er persónulegt met fyrir hann. Hann hefur verið hjartað í sóknarleik City í deildinni í vetur og hefur valdið usla í vörn andstæðinganna trekk í trekk.

Harry Kane (Tottenham)
Gengi Tottenham hefur kannski ekki verið upp á marga fiska en Harry Kane er að eiga eitt af sínum bestu tímabilum hingað til. Hann leiðir kapphlaupið um gullskóinn með 21 mark og er líka með flestar stoðsendingar í deildinni eða 13 talsins. Enginn leikmaður hefur komið að jafn mörgum mörkum og Kane í vetur.

Bruno Fernandes (Manchester United)
Bruno hefur verið frábær í vetur og skorar reglulega en hann er kominn með 16 mörk í deildinni. Hann hefur verið virkilega stöðugur og hefur oft komið til bjargar þar sem lið hans er í baráttunni um Meistaradeildarsæti.

Ruben Dias (Manchester City)
Það er engum blöðum að fletta um það að Ruben Dias hefur verið frábær og einn besti miðvörður deildarinnar í vetur. Eftir komu hans frá Benfica í sumar hefur hann átt fast sæti í liðinu og City virðast loksins búnir að finna nýjan Vincent Kompany. Dias hefur haldið hreinu í helmingi þeirra leikja sem hann hefur spilað.

Mohamed Salah (Liverpool)
Salah vann til verðlaunanna árið 2018 og gæti verið að hann hreppi þau aftur í ár. Liverpool liðið hefur verið langt undir væntingum en Salah hefur verið ljósið í myrkrinu fyrir stuðningsmenn. Salah er annar í kapphlaupinu um gullskóinn og er kominn með 19 mörk í deildinni.

Kevin DeBruyne (Manchester City)
Við skulum ekki gleyma handhafa verðlaunanna í fyrra. Hann hefur kannski ekki skorað jafn mikið og hann gerði á síðasta tímabili en hann er ennþá jafn mikilvægur fyrir liðið og getur sundurspilað vörn andstæðinganna. Hann hefur skorað 6 mörk í deildinni og gefið 11 stoðsendingar.

Jack Grealish (Aston Villa)
Jack Grealish er eini leikmaðurinn á listanum utan „Big six“ liðanna í ár. Hann hefur heillað knattspyrnuáhugamenn í vetur og látið stuðningsmenn Aston Villa dreyma um Meistaradeildarsæti. Hann er kominn með 6 mörk í deildinni og hefur gefið 12 stoðsendingar.

Phil Foden (Manchester City)
Íslandsvinurinn Phil Foden hefur átt frábært tímabil hjá Manchester City í ár og er með í kapphlaupinu um leikmann ársins sem og unga leikmann ársins. Hann hefur loksins fengið stærra hlutverk í liðinu og hefur blómstrað á þessu tímabili.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Á möguleika að skrifa söguna með Ronaldo og Messi í sumar – Gætu spilað á sínu sjötta HM

Á möguleika að skrifa söguna með Ronaldo og Messi í sumar – Gætu spilað á sínu sjötta HM
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Starfsmaður skemmdi 50 milljóna króna Ferrari bíl síðustu helgi

Starfsmaður skemmdi 50 milljóna króna Ferrari bíl síðustu helgi
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Telja sig vel geta skákað Liverpool í sumar

Telja sig vel geta skákað Liverpool í sumar
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Trent sparar ekki stóru orðin

Trent sparar ekki stóru orðin
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Elías og félagar með glæsilegan sigur í Nottingham

Elías og félagar með glæsilegan sigur í Nottingham
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Íslendingaliðin töpuðu – Logi lék allan leikinn

Íslendingaliðin töpuðu – Logi lék allan leikinn
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Sverrir með bandið í frábærum sigri – Á brattann að sækja fyrir Hákon og félaga

Sverrir með bandið í frábærum sigri – Á brattann að sækja fyrir Hákon og félaga
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Segir leikmann sinn hafa beðist afsökunar eftir gærkvöldið

Segir leikmann sinn hafa beðist afsökunar eftir gærkvöldið
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Vilja Kinsky burt eftir hörmungar vikunnar

Vilja Kinsky burt eftir hörmungar vikunnar