fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
433Sport

Mino Raiola og faðir Haaland lentir í Barcelona til að funda með stjórn félagsins

Helga Jónsdóttir
Fimmtudaginn 1. apríl 2021 12:27

Erling Haaland í leik með Dortmund

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Erling Haaland er einn eftirsóttasti leikmaður heims um þessar mundir og hefur verið orðaður við ýmis lið þar á meðal Real Madrid, Barcelona og Manchester City. Hann hefur átt afar gott tímabil hjá Dortmund, hefur skorað 21 mark og gefið 4 stoðsendingar þar að auki í Bundesligunni. Þá er hann markahæstur í Meistaradeildinni með 10 mörk.

Barcelona virðast vera komnir lengst í samningaviðræðum við norska framherjann þar sem Mino Raiola, umboðsmaður Haaland, og faðir hans voru myndaðir í Barcelona í morgun. Spænski fréttamiðillinn Sport birti myndband af þeim félögum í Katalóníu er þeir lentu í morgun.

Haaland er með 65 milljón punda klásúlu sem virkjast sumarið 2022 en gæti farið fyrr þar sem Dortmund er í vandræðum með tryggja sér Meistaradeildarsæti. Talið er að kaupverðið sé um  154 milljónir punda.

Mikið hefur verið skrifað um fjárhagsvandræði Barcelona en þá er talið að samband Raiola og Laporta, nýkjörins formanns Barcelona, sýni að báðir aðilar eru vongóðir um að samningar náist.

Hinn umdeildi umboðsmaður Haaland, Mino Raiola.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Í vandræðum með að fjármagna verkefnið að nýjum heimavelli

Í vandræðum með að fjármagna verkefnið að nýjum heimavelli
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Sindri fer frá Keflavík til að styðja við kærustu sína í Svíþjóð

Sindri fer frá Keflavík til að styðja við kærustu sína í Svíþjóð
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Lögregla algjörlega hneyksluð á stórveldunum

Lögregla algjörlega hneyksluð á stórveldunum
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Æltaði á leik í Meistaradeildinni en mætti á vitlausan leikvang

Æltaði á leik í Meistaradeildinni en mætti á vitlausan leikvang
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Rauf þögnina um martröð liðsfélaga síns

Rauf þögnina um martröð liðsfélaga síns
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Líklegastir til að ná Nunez aftur til Evrópu – Launin gætu flækt málið mikið

Líklegastir til að ná Nunez aftur til Evrópu – Launin gætu flækt málið mikið