fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
433Sport

EM u-21: Ísland lauk keppni á Evrópumótinu með tapi gegn Frökkum

Aron Guðmundsson
Miðvikudaginn 31. mars 2021 17:50

GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenska u-21 árs landsliðið spilaði í kvöld sinn síðasta leik á Evrópumótinu gegn Frakklandi. Leiknum lauk með 2-0 sigri Frakka en leikið var í Györ í Ungverjalandi.

Íslenska liðið byrjaði af krafti og var betri aðilinn fyrstu mínúturnar en það voru hins vegar Frakkar sem komust yfir í leiknum.

Á 17. mínútu skoraði fyrirliði liðsins, Matteo Guendouzi, fyrsta mark leiksins og kom Frökkum yfir.

Þannig stóðu leikar allt þar til á 38. mínútu þegar að Odsonne Édouard, tvöfaldaði forystu Frakka.

Fleiri mörk voru ekki skoruð í leiknum og þar með lauk þátttöku Íslands á Evrópumótinu í þetta skipti. Ísland endar í neðsta sæti G-riðils án stiga, liðið skoraði 1 mark á mótinu og fékk á sig 7 mörk.

Ísland 0 – 2 Frakkland 
0-1 Matteo Guendouzi (’17)
0-2 Odsonne Édouard (’38)

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Í vandræðum með að fjármagna verkefnið að nýjum heimavelli

Í vandræðum með að fjármagna verkefnið að nýjum heimavelli
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Sindri fer frá Keflavík til að styðja við kærustu sína í Svíþjóð

Sindri fer frá Keflavík til að styðja við kærustu sína í Svíþjóð
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Lögregla algjörlega hneyksluð á stórveldunum

Lögregla algjörlega hneyksluð á stórveldunum
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Æltaði á leik í Meistaradeildinni en mætti á vitlausan leikvang

Æltaði á leik í Meistaradeildinni en mætti á vitlausan leikvang
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Rauf þögnina um martröð liðsfélaga síns

Rauf þögnina um martröð liðsfélaga síns
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Líklegastir til að ná Nunez aftur til Evrópu – Launin gætu flækt málið mikið

Líklegastir til að ná Nunez aftur til Evrópu – Launin gætu flækt málið mikið