Chelsea fékk slæmar fréttir í gær fyrir útileik gegn Crystal Palace á morgun.
Miðjumaðurinn N’Golo Kante er að glíma við meiðsli og verður ekki leikfær í mikilvægri viðureign.
Chelsea er í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti og þarf á sigri að halda á Selhurst Park.
Kante er einn allra besti leikmaður liðsins en hann meiddist lítillega gegn Watford um helgina.
Kante er meiddur aftan í læri og gæti einnig misst af leikjum gegn Sheffield United og Norwich.