fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
433Sport

Hlandlykt mætti Kára á hverjum morgni þegar hann mætti til vinnu

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 18. maí 2020 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kári Árnason sem hefur átt fast sæti í íslenska landsliðinu síðustu ár gerir upp ferill sinn í Draumaliðinu hjá Jóa Skúla.

Kári velur draumalið sitt af ferlinum en hann ræðir einnig um ferilinn í heild. Hann fer yfir Steve Evans sem var stjóri hans í Rotherham frá 2012 til 2015.

Evans er umdeildur karakter í enska boltanum en hann ákvað að pissa í vask sinn á hverjum degi. „Ég hefði ekki skipt þessum tíma út fyrir neitt í dag, en þegar þú ert í þessari stöðu þá er þetta ekki gaman. Óneitanlega gaman í rútunni, þegar þú ert með bilaðan einstakling þá hópast allir saman um eitt. Allir í liðinu þola ekki stjórann, hann verður miðpunktur athygli og allra brandara,“ sagði Kári um Evans.

Evans nennti ekki á klósettið í lok dag og skvetti úr skinnsokknum í vask sinn á skrifstofunni. „Hlutirnir sem hann gerði, það var rör tengt úr vaskinum fór inn í sturtuna hjá okkur. Það fór í niðurfallið í sturtunni, hann var oftast seinastur heim. Alltaf áður en hann fór heim þá nennti hann ekki að labba á klósettið, hann pissaði í vaskinn. Það lak inn í sturtuna og hlandlyktin tók á móti okkur daginn yfir.“

Evans las yfir leikmönnum ef þeir gerðu mistök. „Ef við vorum undir að þá var það hárblásari á næsta stigi, ef menn gerðu mistök þá hraunaði hann yfir þá. Frussandi hárblásari, oftast var þetta í hitanum. Hann henti mönnum undir rútuna í fjölmiðlum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Valur býður upp á einn flottasta knattspyrnuskóla landsins – Lagerback, Heimir, Hannes Þór og fleiri góðir þjálfa

Valur býður upp á einn flottasta knattspyrnuskóla landsins – Lagerback, Heimir, Hannes Þór og fleiri góðir þjálfa
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Karólína tjáir sig um sögusagnirnar og gefur sterkar vísbendingar

Karólína tjáir sig um sögusagnirnar og gefur sterkar vísbendingar
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Forseti Sporting glerharður – Telur upp leikmenn sem Arsenal og United hafa keypt í sumar

Forseti Sporting glerharður – Telur upp leikmenn sem Arsenal og United hafa keypt í sumar
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Samtal Liverpool við enska landsliðsmanninn heldur áfram í vikunni

Samtal Liverpool við enska landsliðsmanninn heldur áfram í vikunni
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Valinn besti leikmaður liðsins en vill nú fara – Alls ekki hrifinn af nýja stjóranum

Valinn besti leikmaður liðsins en vill nú fara – Alls ekki hrifinn af nýja stjóranum
433Sport
Í gær

Óttast ekki að missa sæti sitt ef Williams kemur í sumar

Óttast ekki að missa sæti sitt ef Williams kemur í sumar