Ungt knattspyrnufólk út um allan heim hefur ekki fengið að mæta á æfingar síðustu vikur, vegna samkomubanns.
Samkomubann er í gangi vegna kórónuveirunnar og eru mörg börn að gera æfingar heima hjá sér.
Jón Ólafur Daníelsson, hefur lengi starfað við þjálfun ungra iðkenda. Hann gaf okkur leyfi til að birta tækniæfingar sem hægt er að gefa heima.
Æfingarnar voru teknar upp árið 2006 þegar Jón Ólafur starfaði hjá Grindavík. Við hvetjum alla krakka til að leika listir sínar heima fyrir á meðan samkomubannið er í gangi.