Íslenska kvennalandsliðið er komið inn á Evrópumótið sem fram fer á Englandi árið 2022. Íslenska liðið tryggði sig inn á mótið á þriðjudag með 1-0 sigri á Ungverjalandi, hagstæð úrslit í öðrum riðlum síðar um kvöldið tryggðu miðann á Evrópumótið.
Morgunblaðið líkt og aðrir fjölmiðlar fjölluðu um þetta merka afrek hjá stelpunum sem eru komnar inn á sitt fjórða Evrópumót í röð.
Kristján Jónsson blaðamaður Morgunblaðsins upplýsir um það í blaði dagsins að Morgunblaðinu hafi verið bannað að ræða við tvo leikmenn liðsins. Berglind Björg Þorvaldsdóttir sem skoraði sigurmark Íslands fékk ekki að ræða við Morgunblaðið.
„Sjálfsagt hafa einhverjir lesendur blaðsins velt því fyrir sér hvers vegna ekki var leitað viðbragða Berglindar Bjargar Þorvaldsdóttur. Hún skoraði markið mikilvæga en hefur ekki átt fast sæti í byrjunarliðinu. Mér þykir því eðlilegast að upplýsa lesendur um að við fengum ekki að ræða við Berglindi að leiknum loknum. Við fengum þau skilaboð frá KSÍ að ekki væri í boði að ræða við Berglindi né fyrirliða liðsins, Söru Björk Gunnarsdóttur. Ástæðan var sú að þær höfðu þá farið í sjónvarpsviðtal,“ skrifar Kristján í Morgunblaðið í dag.
Morgunblaðinu var boðið að ræða við aðra leikmenn liðsins en Kristján á erfitt með að fá botn í af hverju KSÍ hefur uppi þessa dreifireglu. „Tengiliður okkar bauð okkur að ræða við aðra leikmenn, og var hjálplegur við að bjarga því, en þarna virðist vera einhver dreifiregla hjá KSÍ. Leikmenn fari ekki í fleiri en eitt viðtal eftir landsleiki. Mun það einnig hafa verið gert eftir umspilsleikinn hjá körlunum í Búdapest. Við gátum verið með viðbrögð frá Söru á mbl.is og í Morgunblaðinu vegna þess að komið var á blaðamannafundi með henni þegar fyrir lá að sæti á EM væri í höfn.“
„Dreifireglu sem þessa hef ég ekki rekið mig á áður og botna lítið í henni. Í starfinu er ég í samskiptum við fleira íþróttafólk, og fleiri landslið, en knattspyrnufólkið. Hjá bæði HSÍ og KKÍ mætir manni það viðmót að starfsmenn reyna að bjarga flestum ef ekki öllum þeim viðtölum sem við óskum eftir. Hvort sem við höfum haft efni á því að fara utan á viðburðinn eða sitjum heima. Senda jafnvel sjálf viðtöl heim til að auka umfjöllun.“