Lasse Petry miðjumaður Vals liggur undir feld og íhugar hvort hann eigi að framlengja samning sinn við félagið eða ekki. Petry var einn besti leikmaður Vals þegar liðið varð Íslandsmeistari í knattspyrnu í sumar.
Eftir brösugt fyrsta tímabil sannaði Petry ágæti sitt og segist aldrei hafa verið í betra formi. Petry hefði áhuga á því að fara heim til Danmerkur en er með tilboð frá Val sem togar í hann.
Petry hafði verið með meiðslum hrjáður í Danmörku en hann var á mála hjá FC Nordsjælland og þótti mikið efni á sínum tíma.
„Þetta er erfið ákvörðun því ég þarf líka hugsa um fjölskylduna og það togar mig heim. Það togar samt í mig að vera áfram hjá Val,“ sagði Petry.
„Valur hefur boðið mér nýjan samning og ég er bara að skoða þetta, þeir eru ánægðir með mig og liðsfélagarnir líka. Þeir eru svo gott sem á hnjánum og biðja mig um að vera áfram,“ sagði Lasse léttur við Bold.dk.
Ef lesa má í orð Petry þá væri það draumur hans að komast aftur í gott lið í Danmörku. „Að finna félag hérna heima væri mjög gott en staðan er erfið, tímabilið er í gangi. Ég hef spilað vel með Val í ár og þarf að hugsa þetta vel.“