Tölvuhakkarar hafa komið fyrir vírus í tölvukerfi enska stórliðsins Manchester United og komist yfir viðkvæmar upplýsingar er snerta félagið. Hakkararnir krefjast margra milljóna punda frá félaginu.
Enska félagið hefur sett saman teymi tæknisérfræðinga til þess að reyna ná stjórn á kerfinu aftur og koma í veg fyrir frekari skaða. Árás tölvuhakkaranna hófst fyrir viku síðan.
Breska netöryggisstofnunin (National Cyber Security Center) hefur staðfest að hún sé að hjálpa félaginu við að finna lausn á málinu.
„Stofnunin getur staðfest að leitað hefur verið til okkar varðandi mál sem snertir Manchester United, við erum að vinna með félaginu og tengdum aðilum til þess að komast að stærðargráðu málsins,“ segir í tilkynningu frá stofnuninni.
Árásin lýsir sér þannig að tölvuvírus hefur verið komið fyrir í tölvukerfi félagsins og hakkararnir hafa aðgang að viðkvæmum upplýsingum er tengjast félaginu. Meðal annars stjörnum þess sem og upplýsingum um stuðningsmenn félagsins.
Valmöguleikarnir sem hakkararnir gáfu félaginu var að borga sér þá upphæð sem þeir krefjast eða búa sig undir það að viðkvæmum upplýsingum um félagið og stjörnur þess verið lekið á netið.