fbpx
Þriðjudagur 01.júlí 2025
433Sport

Lyon tapaði fyrsta deildarleiknum í næstum fjögur ár – PSG fagnaði með kampavíni

Sóley Guðmundsdóttir
Laugardaginn 21. nóvember 2020 16:00

PSG hafði tilefni til að opna kampavín eftir sigurinn á Lyon. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Franska stórliðið Lyon mætti PSG í frönsku deildinni í gær.

Leiknum lauk með 1-0 sigri PSG. Lyon hefur ekki tapað deildarleik í næstum fjögur ár. Þær höfðu ekki tapað í síðustu 80 deildarleikjum. Það var því fullt tilefni fyrir PSG að opna kampavín að leik loknum eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.

Sara Björk Gunnarsdóttir spilar með Lyon. Hún kom inn á sem varamaður á 69. mínútu leiksins.

Eina mark leiksins skoraði Marie-Antoinette Katoto á 10. mínútu.

Með sigrinum komst PSG upp fyrir Lyon á topp deildarinnar. PSG er með 25 stig eftir níu leiki og Lyon er með 24 stig eftir níu leiki.

Lyon hefur sigrað frönsku deildina síðustu 14 ár.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Valur býður upp á einn flottasta knattspyrnuskóla landsins – Lagerback, Heimir, Hannes Þór og fleiri góðir þjálfa

Valur býður upp á einn flottasta knattspyrnuskóla landsins – Lagerback, Heimir, Hannes Þór og fleiri góðir þjálfa
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Karólína tjáir sig um sögusagnirnar og gefur sterkar vísbendingar

Karólína tjáir sig um sögusagnirnar og gefur sterkar vísbendingar
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Forseti Sporting glerharður – Telur upp leikmenn sem Arsenal og United hafa keypt í sumar

Forseti Sporting glerharður – Telur upp leikmenn sem Arsenal og United hafa keypt í sumar
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Samtal Liverpool við enska landsliðsmanninn heldur áfram í vikunni

Samtal Liverpool við enska landsliðsmanninn heldur áfram í vikunni
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Valinn besti leikmaður liðsins en vill nú fara – Alls ekki hrifinn af nýja stjóranum

Valinn besti leikmaður liðsins en vill nú fara – Alls ekki hrifinn af nýja stjóranum
433Sport
Í gær

Óttast ekki að missa sæti sitt ef Williams kemur í sumar

Óttast ekki að missa sæti sitt ef Williams kemur í sumar