Elías Már Ómarsson skoraði tvö mörk í 4-0 sigri Excelsior gegn Helmond Sport í hollenska bikarnum í kvöld. Leikurinn fór fram á heimavelli Excelsior í Rotterdam.
Fyrsta mark leiksins kom á 26. mínútu. Þar var að verki Reuven Niemeijer.
Elías Már tvöfaldaði forystu Excelsior með marki á 44. mínútu. Hann var síðan aftur á ferðinni þegar hann kom liðinu í stöðuna 3-0.
Joel Zwarts innsiglaði 4-0 sigur heimamanna með marki í 68. mínútu.
Sigur Excelsior kemur liðinu áfram í 32-liða úrslit hollensku bikarkeppninnar.
Excelsior 4 – 0 Helmond Sport
1-0 Reuven Niemeijer (’26)
2-0 Elías Már Ómarsson (’44)
3-0 Elías Már Ómarsson (’61)
4-0 Joel Zwarts (’68)