Áfram verður bannað að æfa fótbolta og aðrar íþróttir næstu vikurnar á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram á Vísir.is
„Jafnframt verði þau tilmæli sem gilt hafa um íþróttaiðkun gerð að reglum. Þannig muni sömu reglur gilda um íþróttastarf bæði innan- og utandyra. Núverandi reglur kveða á um að íþróttir og líkamsrækt innandyra sé óheimil á höfuðborgarsvæðinu.,“ segir í frétt Vísis.
Lið á Íslandi geta því í fyrsta lagi hafið æfingar í byrjun nóvember, ef hægt verður að fara af stað þá ætti að vera hægt að klára Íslandsmótin í knattspyrnu. Í regluverkinu kveður á um klára þurfi mótin fyrir 1 desember.
Fyrr í dag skoruðu fjöldi félaga á KSÍ að gefast ekki upp og blása mótin af eins og áköll hafa verið úr ýmsum áttum.
Meira:
Utan vallar: Er þetta fullkomin lausn í vonlausu ástandi?