fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
433Sport

Utan vallar: Er þetta fullkomin lausn í vonlausu ástandi?

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 16. október 2020 09:30

Frá Laugardalsvelli.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Utan vallar er skoðunarpistill:

Það bendir margt til þess að síðasti mótsleikur Knattspyrnusambands Íslands á þessari leiktíð hafi farið fram, hertar aðgerðir vegna kórónuveirunnar hafa komið í veg fyrir að það sé spilað. Ísland virðist vera eitt af fáum löndum í heiminum sem bannar íþróttaiðkun á þessum fordæmalausu tímum og því gæti KSÍ þurft að taka í gikkinn og blása mótið af. Sambandið setti inn nýja reglugerð fyrir mótin vegna veirunnar, þar sem hægt er að blása allt af vegna hennar ef búið er að spila 2/3 af mótinu en sambandið ætlaði þó að gefa sér til 1. desember að klára þau. Búið er að leika 2/3 í öllum deildum og því ekkert í regluverkinu sem bannar að blása mótin af, það er hins vegar ósanngjarnt á margan hátt að klára ekki mótin. Mikið er í húfi fyrir marga í þeim örfáu leikjum sem eftir eru. Ég tel mig vera með hina fullkomnu lausn ef blása þarf mótin af vegna veirunnar. Fjölgun liða í efstu tveimur deildum karla og efstu deild kvenna á næstu leiktíð væri sanngjarnast fyrir flesta og hér að neðan er ég með útfærslur á því.

Efsta deild karla
Til að allir sætu við sama borð yrði að spila einn leik í efstu deild karla, Stjarnan og KR eru einu liðin með 17 leiki og eiga þau eftir að mætast. KSÍ myndi fá undanþágu til að spila leik liðanna sem þau eiga innbyrðis. Þar væri mikið í húfi en KR gæti náð fjórða sætinu af Stjörnunni sem gæti gefið Evrópusæti, undanúrslit og úrslit eru eftir í bikarnum en vel er hægt að spila það í janúar eða febrúar. Á næsta ári væri svo hægt að fjölga liðum í deildinni um tvö lið. Fjölnir færi niður en Grótta myndi halda sæti sínu í deildinni. Fjölnir gæti pirrað sig á þessu en þetta væri sanngjörn lausn fyrir flesta. Þrjú lið kæmu svo upp úr 1. deildinni en Keflavík situr þar í efsta sæti og Leiknir og Fram eru jöfn að stigum í öðru og þriðja sæti. Ef mótið yrði ekki klárað væri sanngjarnt að mínu viti að þessi lið færu upp. 14 liða deild á næsta ári vegna veirunnar og hægt að kjósa um það á ársþingi í febrúar hvernig framhaldið verður.

1. deild karla
Með því að setja þrjú lið upp væri ég með tíu lið eftir í 1. deild eftir að hafa sent Fjölni niður um deild enda liðið ekki unnið einn leik í efstu deild í sumar og hefur gott af hvíldinni. Ekkert lið myndi falla úr 1. deild á þessari leiktíð, fallbaráttan þar er hörð þegar tvær umferðir eru eftir. Þróttur myndi sleppa við fall í dag ef mótið yrði blásið af og núverandi reglugerð yrði notuð, Þróttur heldur sér uppi á einu marki frekar en Magni en bæði lið hafa 12 stig líkt og Leiknir Fáskrúðsfirði, ekki beint sanngjarnt fyrir einn né neinn að falla á svona smáatriði þegar mótið hefur ekki verið klárað. Úr 2. deild karla myndi ég svo sækja fjögur lið og búa til 14 liða 1. deild að ári. Kórdrengir hafa vel unnið fyrir sæti sínu í deildinni og eru efstir, fara upp sama hvort spilað verður eða ekki. Þróttur Vogum, Selfoss og Njarðvík eiga svo öll möguleika á öðru sæti deildarinnar. Þau færu öll upp í 1. deildina og 14 liða deild yrði næsta sumar. Eins og með efstu deild væri svo hægt að ræða málin betur á ársþingi KSÍ.

2. og 3. deild karla
Í annarri deild næsta sumar yrðu því eftir átta lið, ekkert lið myndi falla úr deildinni. KV og Reynir Sandgerði hafa nú þegar tryggt sér sæti í deildinni að ári með góðum árangri í 3. deildinni. Tvö lið til viðbótar kæmu með upp sem yrðu þá Augnablik og KFG og eftir sæti 12 liða deild eins og áður  Til að allir sætu við sama borð væri heiðarlegast að leikur Sindra og Vængja Júpíters færi fram og þá hefðu öll lið spilað 20 leiki, Sindri gæti með mínum hugmyndum þá tekið sætið í 2 deild af Augnablik. . Í 3. deild karla væru eftir átta lið en ÍH og KFS hafa nú þegar tryggt sér sæti í deildinni að ári. Hamar og Kormákur/Hvöt sem léku um þriðja sætið í fjórðu deildinni færu upp í 3. deildina með þeim liðum og áfram væri þar 12 liða deild. Fjórða deildin er svo riðlaskipt og leikur einn að halda sama fyrirkomulagi þar.

Efsta deild kvenna
Ef ekki verður hægt að klára deildirnar væri eðlilegast í kvennaflokki að ekkert lið myndi falla og eftir sætu tíu lið í deildinni. Fjöldi liða getur enn fallið og þar á meðal KR sem hefur í þrígang farið í sóttkví í sumar vegna veirunnar. Tindastóll og Keflavík kæmu upp og hægt væri að spila 12 liða efstu deild að ári. Í neðri deildum kvenna er svo hægt að stilla mótin þannig af að 8-10 lið yrðu í 1. og 2. deild að ári. Líklegt er að flest lið myndu sætta sig við þessa niðurstöðu.

Með þessu fyrirkomulagi held ég að allir gætu sætt sig við að mótin yrðu blásin af þó að það sé von mín og ósk að KSÍ gefist ekki upp og reyni allt sem hægt er til að klára mótin í kringum 1. desember ef þess þarf.

Utan vallar er skoðunarpistill:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Eyðir hverri einustu mynd eftir að hafa verið fitusmánuð fyrir framan alþjóð – Unnusti hennar er heimsfrægur

Eyðir hverri einustu mynd eftir að hafa verið fitusmánuð fyrir framan alþjóð – Unnusti hennar er heimsfrægur
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Setja vermiða á stjórann sem Liverpool vill fá – Mjög vegleg upphæð

Setja vermiða á stjórann sem Liverpool vill fá – Mjög vegleg upphæð
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Tveir handteknir grunaðir um að hafa nauðgað konu á föstudag

Tveir handteknir grunaðir um að hafa nauðgað konu á föstudag
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Leikmenn Coventry steinhissa á því hversu lélegur þessi leikmaður United var

Leikmenn Coventry steinhissa á því hversu lélegur þessi leikmaður United var