fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
433Sport

Allir sem koma að stjórn KSÍ gefa kost á sér til endurkjörs

Hörður Snævar Jónsson
Sunnudaginn 26. janúar 2020 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Framboð til stjórnar KSÍ skal skv. 15. grein laga KSÍ berast skrifstofu KSÍ skriflega minnst hálfum mánuði fyrir þing eða í síðasta lagi 8. febrúar nk. Kjörnefnd er þó heimilt að samþykkja framboð sem fram kemur síðar ef nægjanlegur fjöldi hefur ekki tilkynnt framboð sitt innan tilkynningarfrests. Stjórn KSÍ er kosin á knattspyrnuþingi og skal kosning fara þannig fram:

Kosning formanns
Guðni Bergsson var kjörinn formaður KSÍ til tveggja ára á 73. ársþingi KSÍ í febrúar 2019. Tveggja ára kjörtímabili Guðna sem formanns lýkur á 75. ársþingi KSÍ árið 2021.

Kosning í stjórn

Tveggja ára kjörtímabili eftirtaldra í stjórn KSÍ lýkur á 74. ársþingi KSÍ 22. febrúar nk.:

Gísli Gíslason, Akranesi
Ingi Sigurðsson, Vestmannaeyjum
Ragnhildur Skúladóttir, Reykjavík
Valgeir Sigurðsson, Garðabæ

Gísli Gíslason, Ingi Sigurðsson, Ragnhildur Skúladóttir og Valgeir Sigurðsson gefa kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu.

Auk ofangreindra sitja í stjórn (tveggja ára kjörtímabili þeirra lýkur í febrúar 2021):

Ásgeir Ásgeirsson, Reykjavík
Borghildur Sigurðardóttir, Kópavogi
Magnús Gylfason, Hafnarfirði
Þorsteinn Gunnarsson, Mývatnssveit

Kosning varamanna í stjórn

Eins árs kjörtímabili varamanna í stjórn lýkur á 74. ársþingi KSÍ 22. febrúar nk.:

Þóroddur Hjaltalín, Akureyri
Jóhann Torfason, Ísafirði
Guðjón Bjarni Hálfdánarson, Árborg

Allir ofangreindir gefa kost á sér til áframhaldandi setu sem varamenn í aðalstjórn.

Kosning aðalfulltrúa landsfjórðunga

Eins árs kjörtímabili aðalfulltrúa landsfjórðunganna lýkur á 74. ársþingi KSÍ 22. febrúar nk.:

Jakob Skúlason, Vesturland
Björn Friðþjófsson, Norðurland
Bjarni Ólafur Birkisson, Austurland
Tómas Þóroddsson, Suðurland

Jakob Skúlason, Björn Friðþjófsson, Bjarni Ólafur Birkisson og Tómas Þóroddsson gefa kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn sem aðalfulltrúar landsfjórðunga.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Valur býður upp á einn flottasta knattspyrnuskóla landsins – Lagerback, Heimir, Hannes Þór og fleiri góðir þjálfa

Valur býður upp á einn flottasta knattspyrnuskóla landsins – Lagerback, Heimir, Hannes Þór og fleiri góðir þjálfa
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Karólína tjáir sig um sögusagnirnar og gefur sterkar vísbendingar

Karólína tjáir sig um sögusagnirnar og gefur sterkar vísbendingar
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Forseti Sporting glerharður – Telur upp leikmenn sem Arsenal og United hafa keypt í sumar

Forseti Sporting glerharður – Telur upp leikmenn sem Arsenal og United hafa keypt í sumar
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Samtal Liverpool við enska landsliðsmanninn heldur áfram í vikunni

Samtal Liverpool við enska landsliðsmanninn heldur áfram í vikunni
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Valinn besti leikmaður liðsins en vill nú fara – Alls ekki hrifinn af nýja stjóranum

Valinn besti leikmaður liðsins en vill nú fara – Alls ekki hrifinn af nýja stjóranum
433Sport
Í gær

Óttast ekki að missa sæti sitt ef Williams kemur í sumar

Óttast ekki að missa sæti sitt ef Williams kemur í sumar