Breiðablik gaf út nýtt lag í dag en félagið fékk Herra Hnetusmjör til að semja nýtt stuðningslag fyrir félagið.
Eitt fyrir klúbbinn heitir lagið sem Hnetusmjörið samdi fyrir Breiðablik en rapparinn ólst upp í Kópavogi.
Herra Hnetusmjör er einn vinsælasti tónlistarmaður landsins en lagið má heyra hér að neðan.