Mohammad bin Salman, krónprins, Saudí Arabíu er að ganga frá kaupum á Newcastle. Þetta fullyrða ensk blöð.
Mike Ashley hefur lengi viljað selja Newcastle og segja ensk blöð að hann sé klár í að losa sig við félagið fyrir 300 milljónir punda.
Samningur vegna þess er á lokastigi en Bin Salman er sterk efnaður og gæti breytt Newcastle í stórveldi.
Bin Salman verður ríkasti eigandi ensku úrvalsdeildarinnar og hefur mikla yfirburði. Glazer fjölskyldan situr í níunda sæti.
John W Henry, eigandi Liverpool kemst ekki á lista yfir tíu ríkustu eigendur deildarinnar.