Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, heimtar meira frá framherjanum Anthony Martial.
Martial hefur verið að spila ágætlega undanfarið en hann tók við treyju númer níu af Romelu Lukaku í sumar.
Martial hefur lengi þurft að spila á vængnum en Solskjær vill sjá fleiri mörk frá franska landsliðsmanninum.
,,Ég heimta ennþá meira frá honum. Stundum kemur boltinn beint fyrir vítateiginn og þar á hann að vera,“ sagði Solskjær.
,,Ég ýti við honum og segi honum að hann hefði átt að skora þarna. Að skora 25 mörk frekar en 15 mörk er mikill munur fyrir níu.„