fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
433Sport

Solskjær segir að Lingard og Pereira verði að bæta sig til að komast aftur í hóp

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 24. febrúar 2020 15:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United vann sannfærandi sigur í ensku úrvalsdeildinni í gær er liðið mætti Watford. Spilað var á Old Trafford í Manchester og átti nýi maðurinn Bruno Fernandes hörkuleik fyrir heimamenn.

Fernandes skoraði bæði og lagði upp fyrir United í 3-0 sigri en mark hans kom af vítapunktinum. Þeir Anthony Martial og Mason Greenwood spiluðu einnig fyrir United í sigrinum.

Það vakti athygli að hvorki Jesse Lingard né Andreas Pereira voru í leikmannahópi United í gær, báðir hafa spilað stóra rullu á þessari leiktíð.

,,Það er meiri og meiri samkeppni í liðinu, þú verður að bæta leik þinn,“
sagði Ole Gunnar Solskjær þegar hann var spurður um fjarveru Lingard og Pereira.

Líklegt er að báðir verði til sölu í sumar en Lingard hefur samið við Mino Raiola um að finna sér nýtt lið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Er þetta sterk vísbending um að hann verði sá fyrsti sem Slot fær til Liverpool?

Er þetta sterk vísbending um að hann verði sá fyrsti sem Slot fær til Liverpool?
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Opinbera hvers vegna Salah og Klopp rifust um helgina

Opinbera hvers vegna Salah og Klopp rifust um helgina
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Einum manni brá oft fyrir í svörum leikmanna Vals – „Það góða er að hann heldur sjálfur að hann sé með svo flottan stíl“

Einum manni brá oft fyrir í svörum leikmanna Vals – „Það góða er að hann heldur sjálfur að hann sé með svo flottan stíl“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Hæstánægður þrátt fyrir áhuga Manchester City – ,,Væri að ljúga ef ég myndi segja eitthvað annað“

Hæstánægður þrátt fyrir áhuga Manchester City – ,,Væri að ljúga ef ég myndi segja eitthvað annað“