Kylian Mbappe, leikmaður Paris Saint-Germain, er ekkert smá hrifinn af enska liðinu Liverpool.
Liverpool er ósigrað á toppi ensku úrvalsdeildarinnar og stefnir ekkert í að liðið sé að fara að tapa leik í bráð.
,,Það sem Liverpool er að gera þessa stundina er magnað. Þeir eru eins og vél,“ sagði Mbappe.
,,Þeir hafa ekki tapað leik og þegar þú horfir á þá heldurðu að það sé auðvelt en það er það ekki.“
,,Þeir eru svo einbeittir, þeir spila leikir á þriggja daga fresti og vonna, vinna og vinna.„