fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
433Sport

Rooney heldur áfram að niðurlægja eiginkonuna: Hótar að taka börnin

Ritstjórn DV
Mánudaginn 11. febrúar 2019 09:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Wayne Rooney, fyrrum fyrirliði Manchester United, komst í fréttirnar í síðasta mánuði eftir ölvun á almannafæri.

Rooney var handtekinn á flugvelli í Washington en hann var í annarlegu ástandi eftir langt flug.

Samkvæmt enskum miðlum hefur Rooney komið sér í meira vesen og hótar konan hans, Coleen Rooney að fljúga aftur heim.

Þau eru búsett í Bandaríkjunum þessa stundina en Rooney samdi við DC United í MLS-deildinni á síðasta ári.

Þeirra hjónaband er í hættu eftir að Rooney hafði fengið sér of mikið í glas á bar og reyndi við afgreiðslustúlku.

,,Þú hefur niðurlægt mig aftur,“ er haft eftir Coleen og er bætt við að hún hafi aldrei verið eins reið út í eiginmann sinn.

Rooney virðist vera í vandræðum með áfengi en hann hefur skemmt sér mikið síðan MLS-deildin fór í pásu.

Coleen hótar nú að flytja aftur til Englands með börnin en hún hefur fengið sig fullsadda af hegðun Rooney.

Saman eiga þau þrjá syni, þá Kit, Klay og Kai en þau hafa verið gift frá árinu 2008.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Baunaði hressilega á fyrrum samstarfsmenn í sjónvarpinu: Var aldrei svona heppinn – ,,Gátu ekki dreift vatnsflöskum sín á milli“

Baunaði hressilega á fyrrum samstarfsmenn í sjónvarpinu: Var aldrei svona heppinn – ,,Gátu ekki dreift vatnsflöskum sín á milli“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Staðfestir að hann sé ekki hættur – Endurkoma á næstunni

Staðfestir að hann sé ekki hættur – Endurkoma á næstunni
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Gætu neyðst til að selja vonarstjörnuna í sumar vegna fjárhagsvandræða

Gætu neyðst til að selja vonarstjörnuna í sumar vegna fjárhagsvandræða
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun