Julian Nagelsmann, einn allra efnilagasti stjóri heims, hefur áhuga á að stýra liði Barcelona í framtíðinni.
Nagelsmann er aðeins 32 ára gamall en hann stýrir RB Leipzig í Þýskalandi eftir góðan árangur með Hoffenheim.
Draumur hans er að fara til Barcelona einn daginn og hafnaði til að mynda Borussia Dortmund á sínum tíma.
,,Ég hef sagt það margoft: Barcelona er falleg borg og félagið er fallegt,“ sagði Nagelsmann.
,,Þeir eru þó ekki eina félagið sem er heillandi. Það er rétt að ég hef hafnað öðrum liðum en í fótbolta þá snýst allt um tímasetninguna.“