Duncan Ferguson stýrði Everton í sínum fyrsta leik í dag er liðið mætti Chelsea á Goodison Park.
Ferguson tók við liðinu í vikunni af Marco Silva sem var rekinn eftir slæmt 5-2 tap gegn Liverpool.
Everton svaraði fyrir sig í dag og vann góðan 3-1 sigur og lyfti sér upp úr fallsæti.
Ferguson er afar litríkur karakter og var líflegur á hliðarlínunni í sigri hans manna í dag.
Í eitt skiptið þá fagnaði Ferguson með boltastrák vallarins og lyfti honum upp í gleðinni.
Þetta má sjá hér.
Duncan Ferguson er nýji uppáhaldsstjórinn minn😂😂 pic.twitter.com/eoa9Bsnb1a
— Gardar Gunnlaugsson (@Gunnlaugsson9) 7 December 2019