Talsverð fjölgun hefur orðið á landsliðsæfingum yngri landsliða nú í haust en meira er æft á virkum dögum en áður hefur sést, athygli hefur vakið að nánast allar æfingar yngri landsliða þennan veturinn hafa farið fram í Skessunni, nýju knatthúsi FH-inga.
Margir hafa viljað tengja það við Arnar Þór Viðarsson, yfirmann knattspyrnumála hjá KSÍ og tengsl hans við FH. 433.is leitaði svara hjá KSÍ vegna málsins og bað um útskýringu á því af hverju öll yngri landslið Íslands, æfðu nú í Skessunni hjá FH, sem er nýtt knattspyrnuhús. ,,Við breyttum fyrirkomulagi æfinga og æfum núna á virkum dögum í samvinnu við skólana. Með þessu móti æfum við á betri tímum, náum fleiri æfingum yfir veturinn, faglegri umgjörð (fundir, fyrirlestrar, matur …),“ sagði Klara Bjartmarz, framkvæmdarstjóri KSÍ í skriflegu svari við fyrirspurn okkar.
KSÍ borgar fyrir tímana en aðalstjórn FH er eigandi húsins. Klara segir hugsunina að leikmenn séu sjaldnar í burtu frá sínu félagi en á sama tíma og þeir æfa meira í afreksstarfi með landsliðinu. ,,Leikmenn eru sjaldnar burtu frá sínum félögum, leikmenn geta spilað með sínum liðum um helgar og þar sem við höfum allan daginn með leikmönnunum getum við æft 2 á dag. Þar átti Skessan auðveldara með að koma til móts við þarfir okkar. Þar spilar líka inní aðstaða fyrir það sem við ætlum að gera á milli æfinga (máltíðir, fundir og fl.).“
KSÍ hefur reynt að vera sem mest á sama staðnum samkvæmt svari Klöru, þarna sé það í boði og þar með fækkar ferðum á milli húsi. ,,Almennt höfum við reynt að vera sem mest á sama stað með æfingar, til hagræðis. Höfum undanfarin ár verið á föstudögum og laugardögum í Kórnum og síðan í Egilshöll á sunnudögum. Við erum ennþá með tímann á sunnudögum í Egilshöll. Það er mjög erfitt og vandasamt að fá æfingatíma fyrir landsliðin í húsum. Höfum stundum þurft að fara með æfingar upp á Akranes eða í Keflavík.“
Klara segir að KSÍ sé að prófa þetta en þetta verði endurmetið á nýju ári, hvernig þetta hafi tekist til. Þetta breytta fyrirkomulag kemur frá Arnari, yfirmanni knattspyrnumála sem ræddi málið við Fréttablaðið fyrr í ár. „Við erum með margar hugmyndir í kollinum sem hafa það að leiðarljósi að bæta umhverfið. Einni af þeim sem eru komnar á teikniborðið og verður hrint í framkvæmd er að breyta því hvernig yngri landsliðin æfa,“ sagði Arnar við Fréttablaðið.
,,Fyrir það fyrsta ætlum við að fjölga æfingum á árinu úr 15 í 25 án þess að fjölga þeim gluggum þar sem leikmenn koma á landsliðsæfingar. Yngri landsliðin munu æfa í tveimur gluggum á hverju skólamisseri og æfa á virkum dögum í stað þess að æfa um helgar. Við munum vinna í samstarfi við skólakerfið og það er skilyrði af okkar hálfu að leikmenn séu að standa í stykkinu í skólanum ætli þeir að vera valdir,“ segir Arnar Þór.