Brann hafnar því að félagið hafi áhuga á Rúnari Kristinssyni, þjálfara KR. Bergens Tidende segir frá.
Fréttablaðið sagði frá því í morgun að Brann hefði áhuga á Rúnari, hann er orðaður við lið í Noregi og Danmörku.
Lars Arne Nilsen er með samning til 2022 við Brann. ,,Þetta er langt frá sannleikanum, við erum með þjálfara. Þetta gæti verið vitlaust félag sem er rætt um, ég vei það ekki,“ sagði Rune Soltvedt stjórnarformaður félagsins.
Rúnar segir í samtali við norska miðla að hann hafi ekkert heyrt frá Brann.
Rúnar gerði KR að Íslandsmeisturum í gær en hann tók við liðinu aftur fyrir síðasta tímabil eftir dvöl hjá Lilleström og Lokeren.