fbpx
Þriðjudagur 07.maí 2024
433

Grótta selur markvörð sinn til Benfica

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 21. ágúst 2019 14:44

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ana Lúcia Dida, markvörður, Gróttu hefur gengið til liðs við portúgalska stórliðið Benfica. Dida hefur heillað Gróttufólk í sumar með frammistöðu sinni og jákvæðu viðmóti utan vallar.

,,Grótta kveður Didu með söknuði en fagnar um leið því frábæra tækifæri sem hún fær nú hjá Benfica,“ segir á Facebook síðu Gróttu.

Magnús Örn Helgason, þjálfari meistaraflokks, sagði þetta um málið: „Benfica hafði samband við Didu um miðjan júlí og við ákváðum strax að standa ekki í vegi fyrir því að hún færi til Portúgal. Dida er frábær markvörður og í raun finnst mér ótrúlegt að hún hafi aldrei fengið tækifæri til að spila í Pepsi-deildinni. Við vorum lánssöm að hafa Didu með okkur stærstan hluta tímabilsins og Grótta samgleðst innilega með henni á þessum tímamótum.“

Fréttastofa Gróttusport heyrði líka hljóðið í Didu sem naut þess að spila með Gróttuliðinu: „Mér fannst ég vera hluti af fjölskyldu hjá Gróttu og er þakklát fyrir tímann sem ég átti hjá félaginu. Það var erfitt að kveðja liðsfélagana á sunnudaginn en ég mun aldrei gleyma ykkur. Takk fyrir allt Maggi, Pétur og Þór og ég veit að framtíðin er björt hjá Gróttu“.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Gylfi Þór æfði ekki í heila viku fyrir leikinn gegn Blikum – „Ég myndi ekki vilja vera dómari, þetta er mjög erfitt“

Gylfi Þór æfði ekki í heila viku fyrir leikinn gegn Blikum – „Ég myndi ekki vilja vera dómari, þetta er mjög erfitt“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Hvað sögðu Adam og Arnar? – Ljóst að Arnar lét þessi orð falla um Erlend

Hvað sögðu Adam og Arnar? – Ljóst að Arnar lét þessi orð falla um Erlend
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Ógeðfellt atvik náðist á myndband – Blys sprakk í höndum hans og einn fingur sprakk af

Ógeðfellt atvik náðist á myndband – Blys sprakk í höndum hans og einn fingur sprakk af
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

United búið að funda með Sancho og endurkoma er í kortunum

United búið að funda með Sancho og endurkoma er í kortunum
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Einn sá eftirsóttasti tjáir sig

Einn sá eftirsóttasti tjáir sig
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Hafnaði Bayern Munchen fyrir West Ham

Hafnaði Bayern Munchen fyrir West Ham
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Klopp efast sjálfur um þessa ákvörðun sína

Klopp efast sjálfur um þessa ákvörðun sína
433Sport
Í gær

Landsliðsmaður með væna pillu á samfélagsmiðlum – Spyr hvort samfélagið sé veikara

Landsliðsmaður með væna pillu á samfélagsmiðlum – Spyr hvort samfélagið sé veikara