Helena Ólafsdóttir hefur sagt upp störfum hjá liði ÍA í Inkasso-deild kvenna en þetta var staðfest í kvöld.
Helena tók við ÍA fyrir þremur árum síðan og vann við hlið Anítu Lísu Svansdóttur sem var henni til aðstoðar.
ÍA hefur undanfarin tvö ár leikið í næst efstu deild og byrjaði sumarið af miklum krafti.
Skagastúlkur hafa hins vegar tapað þremur leikjum í röð í deildinni og sitja í sjötta sæti.
Helena og Aníta hafa því sagt upp störfum en liðið tapaði 1-0 heima gegn Augnablik í gær.