Þeir Ban Davies og Harry Winks hafa skrifað undir nýja samninga við lið Tottenham á Englandi.
Þetta var staðfest í dag en báðir leikmennirnir skrifuðu undir fimm ára samning í London.
Davies er 26 ára gamall bakvörður en hann kom til félagsins frá Swansea fyrir fimm árum síðan.
Winks er uppalinn hjá Tottenham og spilaði sinn fyrsta aðalliðsleik fyrir félagið árið 2014.
Báðir leikmennirnir spiluðu 40 leiki fyrir liðið á síðustu leiktíð og voru því í stóru hlutverki.