Frank Lampard, hefur látið leikmenn Derby vita að hann muni fara frá félaginu. Ef rétta tilboðið kemur frá Chelsea.
Búist er við að Lampard taki við Chelsea á næstu dögum, hann er fyrsta nafn á blaði félagsins.
Maurizio Sarri lét af störfum um helgina og tók við Juventus.
Lampard var að klára sitt fyrsta ár í þjálfun, hann var ansi nálægt því að koma Derby upp í ensku úrvalsdeildina.
Lampard ku funda með Roman Abramovich, eigandan Chelsea í vikunni og þar gæti allt klárast. Lampard lék stærstan hluta ferilsins með Chelsea.