Matthijs de Ligt, varnarmaður og fyrirliði Ajax er eftirsóttur biti. Hann er mest orðaður við Barcelona.
De Ligt er 19 ára gamall leiðtogi sem Manchester United og Liverpool hafa einnig sýnt áhuga.
Sky Sports segir að Manchester United sé ekk lengur að reyna að fá De Ligt, þeir telji að hann fari til Barcelona.
,,Það er að sjálfsögðu áhugi frá öðrum félögum, ég vil ekki segja nein nöfn;“ sagði De Ligt.
,,Hvar sé ég sjálfan mig? Enska úrvalsdeildin er stór, Spánn líka, en það eru líka aðrar deildir.“
,,Ég veit ekki hvar ég mun spila, við sjáum hvað gerist.“