Raphael Varane, leikmaður Real Madrid, segir að það sé mögulegt að Paul Pogba gangi í raðir félagsins í sumar.
Pogba er sterklega orðaður við brottför þessa dagana en hann er samningsbundinn Manchester United.
Real er talið hafa áhuga á að fá Pogba í sumar en hann og Varane eru góðir vinir enda samherjar í franska landsliðinu.
,,Ég get ekki sagt frá því hvað ég og Paul tölum um,“ sagði Varane við Marca.
,,Það er pláss fyrir alla góða leikmenn hjá Real og hann er einn af þeim.“
,,Það er mikil samkeppni um stöður hjá Real. Þetta er möguleiki, það eru margar sögusagnir í gangi en við sjáum hvar hann verður í ágúst.“