West Brom 1-0 Aston Villa (2-2, Villa áfram í vítakeppni)
1-0 Craig Dawson(29′)
Aston Villa mun spila við annað hvort Leeds eða Derby í leik um að tryggja sér sæti í ensku úrvalsdeildinni.
Þetta varð staðfest í kvöld en Villa lék við West Bromwich Albion í seinni undanúrslitaleik liðanna.
Villa vann fyrri leikinn 2-1 á Villa Park en West Brom hafði betur 1-0 í venjulegum leik í kvöld og var því flautað á framlengingu.
Þar var ekkert mark skorað en Villa kláraði svo viðureignina að lokum í vítakeppni og fer áfram í næstu umferð.
Leeds og Derby eigast við í hinum undanúrslitaleiknum en Leeds vann fyrri leikinn 1-0 á heimavelli Derby. Leikurinn fer fram á morgun.