Dagný Brynjarsdóttir, ein besta knattspyrnukona Íslands er mætt aftur í atvinnumennsku og byrjuð, að spila á fullu með Portland Thorns. Sindri Sverrisson, blaðamaður á Morgunblaðinu skrifar um hana í dag.
Dagný missti af stærstum hluta síðasta árs í fótboltanum eftir að hafa orðið ófrísk og síðan eignast strák.
,,Það er gaman að sjá hversu fljót Dagný Brynjarsdóttir hefur verið að stimpla sig aftur inn í lið Orlando Pride í Bandaríkjunum. Þegar ég tók viðtal við hana í febrúar talaði hún um að geta vonandi farið að spila 90 mínútna leiki í júní, en verkir í mjaðmagrind höfðu þá tafið fyrir henni á leið aftur á fótboltavöllinn eftir að hafa átt barn í fyrra,“ skrifaði Sindri í Morgunblaðið í dag.
,,Dagný var því á undan áætlun þegar hún lék um helgina sinn fyrsta 90 mínútna leik síðan haustið 2017. Hún gerði gott betur og skoraði í 3:1-sigri. „Því miður“ er enn langur tími fram að næsta mótsleik íslenska landsliðsins, þegar undankeppni EM hefst í lok ágúst, en það er gott að sjá einn lykilleikmanna liðsins vera að snúa aftur.“
Ísland rétt missti af sæti á HM, liðið missteig sig undir lokin þegar Dagný var fjarverandi. Hún segir það hafa verið áfall að komast að þungun sinni.
,,Ég segi „því miður“ vegna þess að auðvitað hefði ég viljað að næstu leikir íslenska liðsins væru leikir á HM í Frakklandi í júní. Ég sá viðtal við Dagnýju fyrir helgi þar sem hún lýsti því einmitt hvílík vonbrigði það hefðu verið að komast ekki á HM. Að það hefði í fyrstu hreinlega verið áfall að komast að því að hún ætti von á barni, því Ísland hefði átt svo góða möguleika á að komast á HM og að hún tryði því enn í dag að liðið hefði komist þangað ef hún hefði verið með. Hún gat þess þó að vissulega væri hún í skýjunum í dag, með Brynjar litla á kantinum.“