Valur spilar við ÍA í Pepsi Max-deild karla þessa stundina en leikurinn er í þriðju umferð og fer fram á Hlíðarenda.
Valsmenn hafa byrjað tímabilið heldur illa og voru með eitt stig eftir tvær umferðir fyrir leik kvöldsins.
Staðan er 2-1 fyrir ÍA þessa stundina en liðið var 2-0 yfir gegn Íslandsmeisturunum eftir fyrri hálfleikinn.
Spilamennska Valsmanna hefur ekki verið sannfærandi og taka knattspyrnuaðdáendur eftir því.
Sjónvarps og útvarpsmaðurinn Ríkharð Óskar Guðnason eða Rikki G er á meðal þeirra sem eru ekki hrifnir af liði Vals.
,,Algjört þrot hjá afmælisliði dagsins. Illa skipulagt lið, illa þjálfað lið, illa vondur mórall. Þú drekkur ekki sama kampavínið ári seinna,“ skrifar Rikki í kvöld.
,,Þú getur það alveg en það mun alltaf bragðast illa. Hrós á ÍA. Það er frábærlega þjalfað lið.“
Það eru enn um 20 mínútur eftir af leiknum og nú er að sjá hvort Valsmenn geti jafnað metin eða ekki.
Algjört þrot hjá afmælisliði dagsins. Illa skipulagt lið, illa þjálfað lið, illa vondur mórall. Þú drekkur ekki sama kampavínið ári seinna. Þú getur það alveg en það mun alltaf bragðast illa. Hrós á ÍA. Það er frábærlega þjalfað lið.
— Rikki G (@RikkiGje) 11 May 2019