Ensk blöð segja að Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United vilji að félagið versli leikmann sem Jose Mourinho, vildi ólmur fá.
Solskjær hefur þó ekki fengið starfið hjá United til framtíðar en ef hann klárar Meistaradeildarsæti, ætti hann að fá starfið.
Sagt er að Solskjær vilji fá Harry Maguire í hjarta varnarinnar hjá sér, hann telji að hann styrkji liðið mikið.
Mourinho reyndi að fá Maguire til United síðasta sumar en stjórn United vildi ekki eyða meiri peningum í hugmyndir Mourinho.
Mourinho var svo rekinn úr starfi í desember og Solskjær tók við, vitað er að Maguire hefði mikinn áhuga á þessum skiptum.