fbpx
Þriðjudagur 30.apríl 2024
433

Lét leikmenn spila aðra íþrótt á æfingum – Ræddu við stjórnina og létu reka hann

Victor Pálsson
Laugardaginn 16. mars 2019 11:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Claudio Ranieri var rekinn frá liði Fulham nýlega eftir að hafa aðeins tekið við liðinu á síðasta ári.

Ranieri var fenginn til Fulham eftir brottrekstur Slavisa Jokanovic og átti að breyta slæmu gengi liðsins.

Það gekk hins vegar mjög illa og var Ítalinn fljótt látinn fara. Hann tók svo við liði Roma á nýjan leik í kjölfarið.

Samkvæmt enskum miðlum voru leikmenn Fulham alveg komnir með nóg af æfingum Ranieri.

Hann er ansi sérstakur á æfingasvæðinu og lét sína leikmenn spila handbolta í klukkutíma degi fyrir leik.

Ranieri var ekki mikið fyrir það að æfa taktík eða föst leikatriði og reyndi að koma leikmönnunum í betra form.

Nokkrir leikmenn ræddu við stjórn félagsins og sögðu að Ranieri væri einfaldlega ekki rétti maðurinn í starfið.

Gengi Fulham var ekki gott undir Ranieri en liðið vann aðeins þrjá leiki af 17 undir hans stjórn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Viktor Bjarki braut hjörtu Valsara með marki á lokamínútu leiksins – Sjö stigum á eftir Víkingi

Viktor Bjarki braut hjörtu Valsara með marki á lokamínútu leiksins – Sjö stigum á eftir Víkingi
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Elvar segir frá sögu sem hann heyrði um Adam Ægi á knæpu í Reykjavík

Elvar segir frá sögu sem hann heyrði um Adam Ægi á knæpu í Reykjavík
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

United og Arsenal vilja bæði enska landsliðsmanninn

United og Arsenal vilja bæði enska landsliðsmanninn
433
Fyrir 18 klukkutímum

Mjólkurbikarinn heldur áfram að rúlla á morgun og miðvikudag

Mjólkurbikarinn heldur áfram að rúlla á morgun og miðvikudag
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Er þetta sterk vísbending um að hann verði sá fyrsti sem Slot fær til Liverpool?

Er þetta sterk vísbending um að hann verði sá fyrsti sem Slot fær til Liverpool?
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Opinbera hvers vegna Salah og Klopp rifust um helgina

Opinbera hvers vegna Salah og Klopp rifust um helgina