Franz Beckenbauer, fyrrum forseti og leikmaður Bayern Munchen, vill sjá Jurgen Klopp þjálfa félagið í framtíðinni.
Klopp er þjálfari Liverpool í dag en hann var áður stjóri Borussia Dortmund og gerði góða hluti.
Hann hefur þjálfað Liverpool frá árinu 2015 og komst liðið í úrslit Meistaradeildarinnar í fyrra.
,,Jurgen Klopp hjá Bayern. Það væri draumurinn,“ sagði Beckenbauer í samtali við Sky Sports.
,,Jurgen er sá sem kenndi Þjóðverjum hvernig á að spila hraðan fótbolta.“
Klopp er þekktur fyrir það að spila mjög orkumikinn bolta þar sem hápressan og hlaup eru í aðahlutverki.