Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, hefur nefnt þrjá leikmenn sem hann óttast mest fyrir leik gegn Manchester United um helgina.
Það fer fram stórleikur á sunnudaginn er liðin eigast við en spilað er á Old Trafford í Manchester.
United hefur verið á mikilli uppleið undanfarið síðan Ole Gunnar Solskjær tók við liðinu af Jose Mourinho.
,,Ander Herrera er að spila sinn besta leik á ferlinum, það er ótrúlegt hvernig hann er að spila,“ sagði Klopp.
,,Paul Pogba er orðinn Pogba aftur. Vinnuframlag framherjana er ótrúlegt. Þeir hafa alltaf haft hraða en nú notar þeir hann á réttum tíma.“
,,Markmaðurinn þeirra [David de Gea] hefur alltaf verið góður, það er enginn vafi um það.“
,,Þetta er annað lið en við mættum í byrjun tímabils en svona virkar þetta.„