Paris Saint-Germain kom sér í vandræði í gær er liðið spilaði við Manchester United í Meistaradeild Evrópu.
PSG heimsótti United í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar og fagnaði 2-0 sigri á Old Trafford.
Franska félagið gerði mistök á Facebook-síðu sinni en þar var leikurinn sýndur og opinn fyrir öllum.
PSG er ekki með sýningarrétt á leikjum í Meistaradeildinni en fékk grænt ljós á að streyma viðureigninni í Brasilíu.
Það hefur væntanlega verið ætlunin að sýna leikinn í Brasilíu en þess í stað var hann opinn fyrir öllum.
UEFA gæti tekið hart á þessu máli og gæti liðið átt von á refsingu fyrir þessi vinnubrögð.
What ? Le match est diffusé sur la page Facebook du PSG ?!??? https://t.co/o88whR7toI #MUPSG pic.twitter.com/TbxcjfdwY7
— Philippe Da Costa (@Philippsch) 12 February 2019