Dietmar Hamann, fyrrum leikmaður Liverpool, lét framherjann Robert Lewandowski heyra það á dögunum.
Hamann gagnrýndi framherja Bayern Munchen og sagði að hann væri latur, sjálfselskur og dramatískur á velli.
Lewandowski hefur sjálfur svarað fyrir sig og sagði að þessi ummæli Hamann væru heimskuleg.
Hamann starfar sem sérfræðingur fyrir Sky Sports í dag en hann þótti ansi öflugur miðjumaður á sínum tíma.
Hasan Salihamidzic, yfirmaður knattspyrnumála hjá Bayern, hefur gagnrýnt Hamann og segir að hann sé vandamál fyrir sjónvarpsstöðina Sky.
,,Það sem Hamann er að gera er að byrja herferð gegn Lewandowski því hann getur ekki horft á leikina almennilega,“ sagði Salihamidzic.
,,Ég tel ekki að Robert Lewandowski sé vandamál fyrir Bayern. Didi Hamann er vandamál fyrir Sky.“