Huddersfield í ensku úrvalsdeildinni hefur staðfest komu stjórans Jan Siewert frá Borussia Dortmund.
Siewert tekur við þjálfun Huddersfield af David Wagner sem hætti með liðið fyrr í mánuðinum.
Wagner náði stórkostlegum árangri með liðið en eftir slæmt gengi á tímabilinu ákvað hann að hætta.
Huddersfield situr á botni úrvalsdeildarinnar og hefur Siewert lítinn tíma til að koma sér fyrir.
Þjóðverjinn hefur verið þjálfari varaliðs Dortmund en gerir samning við Huddersfield til 2021.