fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
433Sport

Guðni og Geir arka um landið í leit að atkvæðum

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 15. janúar 2019 09:58

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það verður hart barist þann 9 febrúar þegar kosið verður um formann Knattspyrnusambands Íslands, Guðni Bergsson, sitjandi formaður sækist eftir endurkjöri. Þá er Geir Þorsteinsson, fyrrum formaður og framkvæmdarstjóri sambandsins í framboði. Möguleiki er á að Ragnheiður Ríkharðsdóttir fari í framboð.

Framboð Geirs hefur vakið athygli, tvö ár eru síðan að hann lét af störfum. Hann hafði verið formaður og framkvæmdarstjóri hjá sambandinu í fjölda ára. Síðan þá hefur hann legið í dvala en sækist eftir því að komast að aftur.

Geir og Guðni eru byrjaðir að arka um landið í von um að ná kjöri, báðir hafa þeir verið að funda með félögum og kynna hugmyndir sínar.

,,Formaður og heiðursformaður KSÍ kíktu Við í kaffibolla á Vivaldivöll í gær og fóru yfir málin með stjórn knattspyrnudeildar Gróttu. En eins og alþjóð veit bauð Geir Þorsteinsson sig fram gegn sitjandi formanni KSÍ Guðna Bergs,“ sagði Grótta á Facebook í gær.

Ljóst er að þeir félagar munu reyna að heimsækja flest félög í von um að tryggja sér starfið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Hákon fékk mínútur í gríðarlega mikilvægum sigri

Hákon fékk mínútur í gríðarlega mikilvægum sigri
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

England: Frábær fyrri hálfleikur tryggði Arsenal þrjú stig í stórleiknum

England: Frábær fyrri hálfleikur tryggði Arsenal þrjú stig í stórleiknum
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Sjáðu ótrúlegar myndir: Fann óvenjulegt vopn og hótaði öllu illu – Á von á harðri refsingu

Sjáðu ótrúlegar myndir: Fann óvenjulegt vopn og hótaði öllu illu – Á von á harðri refsingu
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Byrjunarlið Tottenham og Arsenal – Mikið undir í stórleiknum

Byrjunarlið Tottenham og Arsenal – Mikið undir í stórleiknum
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Telur pirring ríkja fyrir norðan – „Þetta er ekki að slá ryki í augun á neinum“

Telur pirring ríkja fyrir norðan – „Þetta er ekki að slá ryki í augun á neinum“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Hrafnkell ómyrkur í máli og trúði vart því sem hann sá – „Það var bara fáránlegt að horfa upp á þetta“

Hrafnkell ómyrkur í máli og trúði vart því sem hann sá – „Það var bara fáránlegt að horfa upp á þetta“
433Sport
Í gær

Varane þakkar stuðninginn og getur ekki beðið eftir endurkomunni

Varane þakkar stuðninginn og getur ekki beðið eftir endurkomunni
433Sport
Í gær

Verðandi stjóri Liverpool minnir hann á goðsögnina

Verðandi stjóri Liverpool minnir hann á goðsögnina