Hannes Þór Halldórsson markvörður Íslands er á lista yfir leikmenn sem eru einstakir utan vallar eins og innan hans.
Um er að ræða leikmenn sem eru líka þekktir fyrir eitthvað annað en afrek sín innan vallar.
Daily Mail tók saman lista yfir þessa leikmenn en þarna er talað um Hannes. Sagt er frá hæfileikum Hannesar sem leikstjóra og tökumanns.
Hannes vann við slíka hluti áður en hann hélt í atvinnumennsku og stýrði Coca Cola auglýsingu nú fyrir HM. Líkur eru á að hann fari í slíkt starf eftir að ferlinum lýkur.
Þarna er einnig nefndur Adil Rami varnarmaður Frakklands en afrek hans er að vera kærasti Pamelu Anderson.