Ray Wilkins er látinn 61 árs gamall en hann átti frábæran feril sem leikmaður og í þjálfun.
Hann lék með Manchester United, Chelsea, PSG, Milan og fleiri liðum.
Wilkins fékk hjartaáfall í síðustu viku og hafði síðan þá verið í lífshættu.
Hann lést svo í dag en Wilkins var þekktastur síðustu ár fyrir að vera aðstoðarþjálfari Chelsea.
Wilkins hafði farið í skoðun síðasta sumar þar sem ekkert benti til þess að eitthvað væri að hjartanu hans.
Everybody associated with Chelsea Football Club is devastated to learn of the passing of our former player, captain and assistant coach, Ray Wilkins. Rest in peace, Ray, you will be dreadfully missed. pic.twitter.com/cSDhloOPDZ
— Chelsea FC (@ChelseaFC) April 4, 2018