Kynþáttaníð er enn mikið vandamál í knattspyrnunni og undanfarnar vikur hafa ýmis leiðindarmál komið upp.
Eitt atvik átti sér stað í leik Tottenham og Arsenal sem fór fram á Emirates vellinum í London.
Það var boðið upp á skemmtilegan grannaslag en Arsenal hafði að lokum betur með fjórum mörkum gegn tveimur.
Pierre-Emerick Aubameyang skoraði tvö mörk fyrir Arsenal í leiknum og tók stóran þátt í sigri heimamanna.
Eftir fyrra mark Aubameyang þá kastaði stuðningsmaður Tottenham bananahýði í átt að framherjanum sem er dökkur á hörund.
Stuðningsmaðurinn afsakaði sig svo eftir leikinn og neitaði því að hafa verið með kynþáttarfordóma í garð Aubameyang.
Enska knattspyrnusambandið hlustaði ekki á þær afsakanir og hefur dæmt stuðningsmanninn í fjögurra ára bann frá knattspyrnu.
Hann má því ekki mæta á leiki næstu fjögur árin og var þá einnig sektaður um 500 pund.