ESPN fullyrðir að Mauricio Pochettino stjóri Tottenham, sé maðurinn sem Manchester United vill til starfa næsta sumar.
Pochettino hefur unnið gott starf hjá bæði Southampton og Tottenham, þar hefur hann spilað sóknarbolta og gefi ungum leikmönnum séns.
Pochettino virðist bæta þá leikmenn sem að hann hefur í sínum röðum, það er eitthvað sem stjórn Manchester United horfir til.
Jose Mourinho, var rekinn frá félaginu í morgun. Á sínu þriðja tímabili fór allt að hrynja og í gærkvöldi fékk stjórn United nóg, Mourinho var síðan rekinn í morgun.
United ætlar að ráða stjóra út tímabilið sem líklega verður Laurent Blanc, stjór til framtíðar mætir svo næsta sumar.
Sagt er að Ed Woodward, stjórnarformaður félagsins hafi reynt að fá Pochettino sumarið 2016 til félagisns. Hann vildi hins vegar halda áfram hjá Totenham og því var Mourinho ráðinn.
Pochettino fengi meiri fjármuni til leikmannakaupa hjá United og ætti líklega meiri möguleika á að vinna ensku úrvalsdeildina.