Stuðningsmenn Chelsea á Englandi hafa komið sér í vandræði eftir leik gegn MOL Vidi í kvöld.
Leikur kvöldsins var í Evrópudeildinni en liðin skildu jöfn, 2-2 en spilað var í Ungverjalandi.
Stuðningsmaður Chelsea komst í fréttirnar um helgina fyrir að vera með kynþáttarfordóma í garð Raheem Sterling, leikmanns Manchester City.
Það eru einhverjir sem hafa ekkert lært af því og ef UEFA nú að rannsaka hegðun sumra stuðningsmanna liðsins í kvöld.
Þeir eru ásakaðir um að hafa sungið niðrandi söngva um gyðinga í stúkunni en þeim var einnig beint að Barcelona, Real Madrid og Tottenham.
Eftir leik var svo staðfest að UEFA myndi rannsaka málið frekar og gæti Chelsea verið í enn meira veseni.
BREAKING: UEFA investigating allegations of anti-semitic chanting by @ChelseaFC fans during Europa League game at Mol Vidi #SSN
— Sky Sports News (@SkySportsNews) 13 December 2018