Aymeric Laporte hefur staðið sig vel með liði Manchester City en hann kom þangað frá Athletic Bilbao í fyrra.
Laporte spilaði með yngri landsliðum Frakklands en hefur enn ekki fengið tækifæri með aðalliðinu sem vekur athygli.
Þessi 24 ára gamli leikmaður hefur nú tjáð sig um það en hann telur að Didier Deschamps, landsliðsþjálfari, hafi eitthvað á móti sér.
,,Þetta er spurning sem er bara hægt að svara á einn hátt: það er þjálfari sem hringir ekki í mig svo ég þarf að bíða og halda áfram að vinna,“ sagði Laporte.
,,Auðvitað tel ég að þetta tengist ekki knattspyrnuhæfileikum, þið þurfið að spyrja hann út í það.“
,,Ég hef ekkert á móti honum persónulega en ef einhver er með vandamál þá er það hann en ekki ég.“
,,Ég gæti verið heimsmeistari… En þetta er ákvörðun þjálfarans sem hringir ekki í mig og ég verð að virða það.“