Margir stuðningsmenn Liverpool gátu brosað í dag eftir tilkynningu félagsins í morgun.
Félagið staðfesti þá að Joe Gomez væri búinn að skrifa undir nýjan samning við félagið til ársins 2024.
Gomez hefur staðið sig mjög vel á Anfield en hann kom til félagsins fyrir þremur árum síðan.
Hann og Virgil van Dijk mynda mjög öflugt miðvarðarpar í Liverpool og er framtíðin björt.
Van Dijk var sjálfur mjög ánægður eftir að hafa heyrt fréttirnar og faðmaði liðsfélaga sinn á æfingu.
Hollendingurinn birti myndband af því á Twitter-síðu sína og segir að samningurinn sé vel verðskuldaður.
Myndbandið má sjá hér.
The moment I found out @J_Gomez97 signed his new deal!✍? Well deserved brother ? #WeAreLiverpool pic.twitter.com/C2pqhBxh3g
— Virgil van Dijk (@VirgilvDijk) 10 December 2018